Foreldraráð.

Kjósa skal foreldraráð við leikskóla og skal leikskólastjóri hafa frumkvæði að kosningu í ráðið. Í foreldraráði sitja að lágmarki þrír foreldrar. Skal kosning til foreldraráðs fara fram í september á ári hverju og skal kosið til eins árs í senn. Foreldraráð setur sér starfsreglur. Leikskólastjóra ber að starfa með foreldraráði. Leikskólastjóri getur sótt um undanþágu til sveitarfélags um stofnun foreldraráðs ef gildar ástæður eru fyrir hendi, svo sem vegna fámennis í leikskóla.

 Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskóla og nefndar, sbr. 2. mgr. 4. gr., um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi.

Foreldraráð Furugrundar 2024 - 2025: 

Gréta María Valdimarsdóttir
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Gísli Ólafsson
Eva Sif Jóhannsdóttir leikskólastjóri.

 

 

Fundargerð aðalfundar 2023 er hægt að sjá hér.Fundargerð aðalfundar 2021 er hægt að sjá hér.Fundargerð aðalfundar 2020 er hægt að nálgast hér.Fundargerð 2019 -2020 er  hérStarfsreglur foreldraráðs er hægt að nálgast hér.