Foreldrafélag er starfandi við leikskólann. Verkefni foreldrafélagsins er að styðja vel við starfið í leikskólanum. Foreldrar eru hvattir til að taka virkan þátt í starfi forleldrafélagsins.
Árgjald foreldrafélagsins er 7.950 kr. á ári fyrir hvert barn og er valgreiðsla í heimabanka. .
Kennitala foreldrafélagsins er: 510893-2639
Reikningsnúmer: 0322-26-004510
Foreldrar athugið!
Foreldrar sem eiga fleiri en eitt barn í leikskólanum geta samið um það að greiða helming gjaldsins eftir áramót.
Stjórn foreldrafélagsins 2024 - 2025
Formaður í stjórn og situr áfram er Steinunn Camilla Sigurðardóttir. Anna Bergljót Thorarensen situr áfram sem gjaldkeri stjórnar.
Nýir í stjórn eru:
- Anna Mjöll Aðalsteinsdóttir Clausen
- Melkorka María Guðmundsdóttir
- Rannveig Magnúsdóttir
- María Rúnarsdóttir
Skoðunarmaður reikninga er Eva Ósk Eggertsdóttir.
Stjórn foreldrafélagsins er því sem hér segir;
- Anna Bergljót Thorarensen
- Steinunn Camilla Sigurðardóttir
- Anna Mjöll Aðalsteinsdóttir Clausen
- Melkorka María Guðmundsdóttir
- Rannveig Magnúsdóttir
- María Rúnarsdóttir
Leikskólastjóri: Eva Sif Jóhannsdóttir ásamt aðstoðarleikskólastjóra /Helga H. Þorsteinsdóttir eru tengiliðir leikskólans við stjórn.
Fundargerðir
Fundargerð aðalfundar 9.október 2024
Fundargerð aðalfundar 19.september 2023
Fundargerð aðalfundar 5.októrber 2021
Fundargerð aðalfundar 21.október 2020
Fundargerð aðalfundar 2. október 2019.
Lög og starfsreglur Foreldrafélags leikskólans Furugrundar
Félagið heitir Foreldrafélag leikskólans Furugrund
1. Félagar eru forráðamenn barna í leikskólanum. Foreldrar teljast félagar í foreldrafélaginu jafnskjótt og barna þeirra byrjar í leikskólanum og ber forráðamönnum skylda til að inna félagsgjöld af hendi frá þeim tíma. Hægt er að segja sig úr félaginu með sérstkri tilkynningu til stjórnar og fellur þá niður réttur viðkomandi sem og barns hans, til aðgangs að uppákomum og skemmtunum á vegum félagsins.
2. Markmið félagsins er að tryggja sem best velferð og hagsmuni barna í leikskólanum.
3. Markmiði sínu hyggst félagið ná m.a með eftirfarandi leiðum:
- Að hvetja alla foreldra til að taka þátt í og hafa aukin áhrif á aðbúnað og starfsemi leikskólans, í samráði við starfsfólk.
- Að auka tengsl foreldra og starfsfólks.
- Að efla tengsl milli foreldra.
- Að öðru leyti skal taka ákvarðanir um leiðir að markmiðum félagsins á félags og aðalfundum.
- Bóka skal allar ákvarðanir.
4. Reikningsárið er 1. oktober - 30. sept. ár hvert.
5. Stjórn félagsins skal kosin á aðalfundi sem haldinn skal í september eða október ár hvert. Boða skal til aðalfundar með minnst tveggja vikna fyrirvara. Aðalfundur telst fullgildur ef mættir eru foreldrar þriðjungs barna. Foreldrar skulu hafa eitt atkvæði fyrir hvert barn. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum að loknum aðalfundi. Stjórn félagsins skal skipuð fimm fulltrúum og tveimur til vara. Reynt skal að hafa einn fulltrúa frá hverri deild. Einn starfsmaður leikskólans skal vera í stjórn félagsins og er hann jafnframt tengiliður við aðra starfsmenn leikskólans. Ætíð skal reynt að tryggja að ekki gangi fleiri en þrír fulltrúar úr stjórn í hvert sinn.
6. Dagskrá aðalfundar skal vera:
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar félagsins, undirritaðir af gjaldkera og staðfestir af endurskoðanda
- Kosning nýrra fulltrúa og varamanna í stjórn
- Kosning endurskoðanda úr hópi foreldra* Framkvæmda og fjárhagsáætlun og ákvörðun félagsgjalda
- Lagabreytingar sem hafa borist stjórn og auglýstar hafa verið með minnst sjö daga fyrirvara fyrir aðalfund leikskólans.
- Lagabreyringar ná aðeins fram að ganga ef 2/3 hlutar fundarmanna eru þeim samþykkir.
7. Til stjórnarfunda skal boða stjórnarmenn. Varamenn skulu eingöngu boðaðir ef um forföll stjórnarmanna er að ræða. Stjórn skal boða til almennra félagsfunda eftir þörfum. Stjórn er heimilt að tilnefna foreldra til að vinna að ákveðnum verkefnum.