Hérna er hægt að skoða Skólanámskrá Furugrundar.

 

Námskrá leikskóla Kópavogs byggir á Aðalnámskra leikskóla frá 2011, lögum um leikskóla nr. 90/2008 og reglugerðum fyrir leikskóla. Á grunni aðalnámskrár og námskrá leikskóla Kópavogs mótar hver leikskóli sína skólanámská.

Skólanámskrá fjallar um þau gildi sem starf leikskólans byggist á og þá hugmyndafræði sem tekið er mið af.

Í skólanámskrá eiga einnig að koma fram þær áherslur og leiðir sem leikskólinn hefur ákveðið að fara í samskiptum við börn, starfsfólk, foreldra og nærsamfélagið.

Tilgangur skólanámskrár er:

  1. Að skipuleggja uppeldi og nám barna
  2. Að stuðla að skilvirkara starfi
  3. Að gera leikskólastarfið sýnilegra