Kjötsúpa með uppskeru úr skólagarðinum
Líkt og undanfarin sumur þá hefur eitt af haustverkunum verið skólagarður leikskólans. Við fórum í vikunni í fyrstu uppskeru ferðina í garðinn og það voru áhugasöm og stolt börn sem tóku upp gulrætur til að Yrma matráðurinn okkar gæti notað hana í kjötsúpu dagsins.
Það má með sanni segja að súpan hafi fengið kærkomið bragð af sumrinu og uppskerunni okkar, því kjötsúpan hefur sjaldan verið jafn góð! 🥕🍲🌱