Útskrift 2026
Við útskrifuðum okkar elstu nemendur þann 4. júní en dagurinn var einstaklega vel heppnaður.
Börnin mættu á Töfrastein um morguninn og á dagskrá var óvissuferð.
Þau smurðu sér samlokur fyrir ferðina og lögðu síðan af stað með eftirvæntinguna í farteskinu.
Leið þeirra lá upp í Höfuðstöð(Höfuðstöðin – Höfuðstöð Chromo Sapiens), á Shoplifter sýningu Hrafnhildar Arnardóttur sem og að þau fóru í listasmiðju þar sem þau sköpuðu hin ýmsu listaverk.
Á leiðinni heim var komið við í Sullugarðinum í Elliðárdalnum þar sem hver og einn kepptist við að verða sem blautastur.
Það voru blaut og glöð börn sem komu aftur í leikskólann upp úr miðjum degi.
Útskriftarathöfnin sjálf var svo kl. 17 en leikskólastjórinn okkar hún Eva Sif hélt smá ræðu og börnin sungu fyrir foreldra sína, fengu afhent útskriftarskírteini ásamt Blæ bangsa og stækkunargleri. Því stækkunargler er jú mikilvægt að eiga þegar maður skoðar heiminn betur.
Eftir athöfnina þá buðu börnin í pylsupartí en þau gistu síðan í leikskólanum samkvæmt hefð og höfðu öll stækkað um nokkra sentimetra daginn eftir.
Við látum hér með nokkur gullkorn sem börnin komu með þegar þau voru spurð hvað þau hefðu lært af kennurunum sínum:
„Hún hefur kennt mér allt, bara lausnahringinn og allt“
„Hún hefur kennt mér að róa mig“
„Hún hefur kennt mér að stjórna mér og tala við vini mína, ekki bara gráta og öskra“
„Hún hefur kenndi mér Barnasáttmálann“
„Hún er búin að kenna okkur fullt, eins og allt það sem kennt er í leikskólanum“
„Hún kennir mér að leika rosa fallega og læra að slaka á“
„Hún er góð, hefur kennt mér að nota lausnahringinn og að börn eigi að lifa í vatni“
„Hún hefur hjálpað mér að líða betur og kennt mér að segja stopp“
„Hún hefur kennt mér að gera satanama og róa mig niður“
„Hún er góð lausnahetja og kenndi mér að vera góð fyrirmynd og vera góður vinur“