Fasthetjurnar okkar
Í dag þá útskrifuðust börnin af Töfrasteini sem Fasthetjur. Í tilefni dagsins þá buðu börnin foreldrum sínum á síðasta fasthetju fundinn þar sem þau tóku við viðurkenningaskjali frá henni Soffíu gömlu sem líktist þó undarlega mikið henni Öddu okkar lausnarhetju.
Útskriftinni var svo fagnað með danspartíi.
FAST 112 er ætlað börnum á aldrinum 5–9 ára. Í verkefninu læra börnin um helstu einkenni heilablóðfalls í gegnum leik, söng og teiknimyndir. Lögð er áhersla á að efla samhygð, umhyggju og kærleika, auk þess sem börnin tileinka sér hagnýta færni, svo sem hvernig á að hringja í neyðarlínuna.
Markmiðið Fast 112 er ekki að leggja ábyrgð á herðar barnanna, heldur má líkja fræðslunni við brunavarnir, sem margir þekkja sem fastan hluta af leikskólastarfi. Börnin læra í gegnum leik og miðla síðan þekkingu sinni áfram til foreldra sinna. Verkefnið stuðlar þannig að samvinnu barna og fullorðinna og skapar skemmtilegar og jákvæðar samverustundir.