Skemmtileg og viðburðarík vika í Furugrund
Í Furugrund var líf og fjör þessa stuttu en einstaklega skemmtilegu viku. Dagarnir voru fullir af gleði, samveru og góðum stundum.
Vikan hófst á Bolludegi þar sem börnin nutu ljúffengra rjómabolla. Alls voru borðaðar um 150 rjómabollur sem runnu ljúflega niður í litla maga.
Á Sprengidegi buðum við upp á klassískt íslenskt sprengidagsfæði: saltkjöt og baunasúpu. Börnin voru dugleg að smakka, hvort sem þau þekktu réttinn fyrir eða ekki. Það var gaman að sjá hvað þau voru opin og forvitin.
Vikan endaði síðan á fjörugum Öskudegi.
Elstu börnin fóru í skemmtilegan leiðangur, sóttu yngstu börnin og buðu þeim á Öskudagsball á Töfrasteini. Þar ríkti mikil gleði og var mikið dansað. Elstu börnin okkar voru til mikillar fyrirmyndar, tóku hlutverki sínu mjög alvarlega voru ábyrgðarfull og flottar fyrirmyndir. Það má endilega hrósa þeim heima.
Á sama tíma héldu Mánasteinn og Dropasteinn sitt eigið ball og fóru svo í vinalegt flakk á milli deilda. Börnin skemmtu sér vel þvert á deildir og gaman að sjá hvað þau eflast í hvert sinn sem flakkið er í boði.
Dagurinn einkenndist af litadýrð, búningum og frábærri stemmningu.