Börn og foreldrar sem á þurfa að halda eiga að hafa aðgang að samþættri þjónustu við hæfi án hindrana. Samþætt þjónustu í þágu farsældar barns er skipulögð og samfelld og hefur það markmið að skapa heildarsýn og ramma um þau þjónustukerfi sem skipta mestu máli fyrir farsæld barna. Hér í eftirfarandi tengli eru upplýsingar um farsæld barna í Kópavogi   Farsæld barna | Kópavogur (kopavogur.is)

 

Tengiliðir

 Öll börn og foreldrar skulu hafa aðgang að tengilið þjónustu í þágu farsældar barns eftir því sem þörf krefur. Hlutverk tengiliðar er fyrst og fremst að veita upplýsingar, aðstoða foreldra og barn og styðja við samþættingu á fyrsta stigi í samræmi við óskir foreldra og/eða barns. Foreldrar og börn geta leitað sjálf beint til tengiliðar eða sent beiðni í gegnum Þjónustugátt Kópavogsbæjar https://thjonustugatt.kopavogur.is/login.aspx?ReturnUrl=%2f 

 

Tengiliður samþættrar þjónustu í Furugrund er Sólveig Sigurvinsdóttir sérkennslustjóri leikskólans.

solveigsig@kopavogur.is  /sími: 441 - 6304