Innleiðing á lausnarhringnum

Við í Furugrund höfum verið síðastliðin ár að innleiða uppeldisstefnu jákvæðs aga en nú hefur okkur borist liðsauki .

Arnrún María (Adda) ætlar að hjálpa okkur að ná settu marki og verður verkefnastjóri innleiðingar lausnarhringsins og mun hún vera hjá okkur í nokkur skipti í viku.

Lausnahringurinn er verkfæri sem kennir okkur að setja og virða mörk í samskiptum og henta samskiptareglurnar fyrir börn og fullorðna. 
Við erum mjög spennt fyrir þessu samstarfi, hlökkum til að deila meiri upplýsingum með ykkur þegar á líður.

Nánari kynning á henni Öddu má sjá á meðfylgjandi mynd.