Sumarhátíð

Í vikunni þá héldum við upp á sumarhátíðina okkar og mættu börnin í búningum. Þau sem vildu fengu andlitsmálun, við borðuðum grillaðar pylsur úti og fengum ís á eftir. Farið var í ýmsa leiki í garðinum og hlustað á sumarlega tónlist. Ævintýrið með leikfélaginu Vinum var svo leikskýning sem sló í gegn og var mikil ánægja með sýninguna . Í tilefni af sumarhátíð barnanna settum við upp sjálfsmyndir þeirra frá hausti og vori í glugga leikskólans og voru börnin mikið að skoða myndirnar sínar. Þetta var ákaflega vel heppnaður dagur í frábæru veðri.
Fréttamynd - Sumarhátíð Fréttamynd - Sumarhátíð Fréttamynd - Sumarhátíð Fréttamynd - Sumarhátíð Fréttamynd - Sumarhátíð Fréttamynd - Sumarhátíð Fréttamynd - Sumarhátíð Fréttamynd - Sumarhátíð Fréttamynd - Sumarhátíð Fréttamynd - Sumarhátíð Fréttamynd - Sumarhátíð

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn