Veglegar gjafir
Leikskólanum barst vegleg gjöf frá foreldrafélagi skólans í vikunni , tvö sullukör til að nota í útiverunni ásamt vatns/sandvindum. Einnig fengum við átta kassa af Kapla kubbum, tvo á hverja deild. Sló þetta í gegn hjá börnunum sem nutu þess að leika með ný leikföng og þökkum við foreldrafélaginu fyrir þessa góðu gjöf.