Áríðandi tilkynning!

Ágætu foreldrar
 
Starfsmenn í Eflingu sjá um ræstingu í leikskólanum okkar. Nú er svo komið að verkfall hefur staðið yfir frá því á hádegi á mánudag og þrif í leikskólanum eru orðin ófullnægjandi. Því hefur verið tekin ákvörðun um að loka leikskólanum á morgun fimmtudaginn 12. mars og þar til samningar nást.
 
Við óskum jafnframt eftir því að þeir foreldrar sem það geta sæki börnin sín fyrr í dag og sýni þessum aðstæðum fullan skilning . Ég bið ykkur vinsamlegast að upplýsa mig í tölvupósti ef þið hafið tök á að mæta því.
 
Svo vonumst við til að verkfallið leysist sem allra fyrst.
 
Kveðja
Helga leikskólastjóri